Vladimír Pútín, sem var endurkjörinn forseti Rússlands í dag, segir það algjöra þvælu að Rússar hafi staðið á bak við taugaeiturárásina á fyrrverandi gagnnjósnarann Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu. Stjórnvöld í Moskvu séu hins vegar samvinnuþýð við rannsókn málsins.
„Það er bull og þvæla að einhver í Rússlandi leyfi sér að gera eitthvað í líkingu við þetta svona skömmu fyrir kosningar og heimsmeistaramótið í knattspyrnu,“ segir Pútín. „Við höfum eytt öllum efnavopnum,“ bætti forsetinn við.
Rússnesku feðginin Yulia og Sergei Skripal fundust meðvitundarlaus á bekk fyrir utan verslunarmiðstöð í smábæ 4. mars. Hann hafði verið „óvirkur“ njósnari í fleiri ár. Skripal var dæmdur í fangelsi í Rússlandi fyrir njósnir sínar fyrir leyniþjónustu Bretlands árið 2006 en var sendur úr landi í fangaskiptum Rússa og Bandaríkjamanna og settist að í Bretlandi.
Pútín ítrekaði í kvöld vilja rússneskra yfirvalda í þátttöku á rannsókn málsins. „Við erum tilbúin að taka þátt í rannsókninni,“ segir Pútín.