Stúlka á táningsaldri, sem særðist í skotárás í framhaldsskóla í Maryland á þriðjudag, á sér ekki lífs von og verður tekin úr öndunarvél að sögn fjölskyldu hennar. Lögreglan skaut skotárásarmanninn til bana en honum hafði tekist að særa tvo í árásinni.
Árásarmaðurinn skaut hina sextán ára gömlu Jaelynn Willey í höfuðið. Hún hafði áður átt í ástarsambandi við árásarmanninn.
„Strákur særði dóttur mína, hann skaut hana í höfuðið, og hefur nú tekið allt frá okkur,“ hefur The Washington Post eftir móðurinni, Melissu Willey.
Skotárásin átti sér stað í Great Mills-framhaldsskólanum í Maryland. Fimm vikum áður stráfelldi annar árásarmaður samnemendur sína í skóla í Flórída. Fjórtán nemendur létust í árásinni og þrír kennarar og starfsmenn skólans.
Í kjölfarið hefur orðið vakning um skotvopnaeign í Bandaríkjunum.