Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að spyrja Vladimir Pútín Rússlandsforseta út í rússnesku leyniþjónustumennina tólf sem hafa verið ákærðir fyrir að brjótast inn í tölvukerfi flokksmanna Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016.
Í viðtali við CBS fréttastöðina á laugardag var forsetinn spurður hvort hann myndi bera ákærurnar undir Pútín á fundinum í dag. „Ég gæti gert það. Ég hef ekki hugsað út í það, en klárlega mun ég spyrja út í það.“
John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi Trump, hefur staðfest að leiðtogarnir tveir hafi komið sér saman um það að engin fyrirframákveðin dagskrá verði á fundinum. Samkvæmt vef BBC telur Bolton það þó ólíklegt að Pútín viti ekki að meintar tölvuárásir Rússa fyrir forsetakosningarnar 2016 verði til umfjöllunar.
Á blaðamannafundi eftir fund Trump og Theresu May í London í síðustu viku sagði forsetinn að rætt yrði um borgarastyrjöldina í Sýrlandi og um önnur hitamál í Mið-Austurlöndum. Einnig er líklegt að innlimun Krímskagans verði til umfjöllunar sem og afkjarnorkuvopnavæðing á Kóreuskaganum.
Í viðtali sínu við CBS sagðist Trump hafa „litlar væntingar“ fyrir fundinn í dag en tók fram að honum þyki jákvætt að þeir skuli vera að hittast. Fundur leiðtoganna tveggja fer fram í Helsinki í Finnlandi og kemur til með að hefjast innan skamms.