Fimm börn berjast nú fyrir lífi sínu, eftir eldsvoða í Aubersvilliers, úthverfi Parísarborgar. Alls eru sjö alvarlega slasaðir eftir brunann, að sögn slökkviliðsmanna.
Nokkrir lögregluþjónar slösuðust einnig lítillega í brunanum, en búið er að ráða niðurlögum eldsins, sem kviknaði á háalofti í tvílyftu íbúðarhúsnæði. Hundrað slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðum á vettvangi, en ekki liggur fyrir af hverju eldurinn kviknaði.
Annar alvarlegur bruni varð í þessu sama úthverfi fyrir minna en mánuði. Þá lést ein kona og þrjú börn hennar, auk þess sem níu aðrir slösuðust.