Christine Blasey Ford, sem hefur sakað Brett Kavanaugh dómaraefni Donald Trumps Bandaríkjaforseta um kynferðislegt ofbeldi þegar þau voru á táningsaldri, hefur samþykkt að bera vitni fyrir dómsmálanefnd bandarísku öldungadeildarinnar. Lögfræðingur hennar tilkynnti þetta fyrir skömmu, en hún hafði fengið viðbótarfrest til að ákveða hvort hún myndi bera vitni. AFP-fréttastofan greinir frá.
Ford „samþykkir beiðni nefndarinnar um að greina frá upplýsingum sem hún hefur um meint kynferðisbrot Brett Kavanaugh í næstu viku,“ sagði lögmaður hennar
Ásakanir Ford rötuðu bandaríska fjölmiðla í síðustu viku, en hún segir atvikið hafa átt sér stað í unglingasamkvæmi árið 1982. Þar hafi Kavanaugh, í félagi við annan ungan mann, rekið sig inn í svefnherbergi í unglingasamkvæmi á heimili í Montgomery-sýslu. Þeir hafi báðir verið mjög ölvaðir og félaginn hafi horft á meðan Kavanaugh hafi reynt að fá sínu fram í rúmi í herberginu, þuklað á henni og misnotað.
Áður hafði verið greint frá því að Ford væri tilbúin að bera vitni fyrir nefndinni, sem vill að fundurinn verði á mánudag. Ford er hins vegar sögð setja það skilyrði að hún veiti vitnisburð sinn ekki en á fimmtudag.
Ford hefur neyðst til að yfirgefa heimili sitt og hefur sætt árásum frá því hún steig fram með ásakanirnar. Hún hefur bæði fengið haturspósta og líflátshótanir, að sögn lögfræðings hennar.