Þungavigtarboxarinn Deontay Wilder kjálkabraut mann sem var í búningi lukkudýrs í beinni útsendingu í bandarískum íþróttaþætti á ESPN. Hann hefur beðist afsökunar á þessu.
Á Instagram sendi Wilder fjölmiðlum sem voru að fjalla um þetta atvik einnig tóninn.
View this post on InstagramA post shared by Deontay Wilder (@bronzebomber) on Oct 13, 2018 at 8:25pm PDT
Fórnarlambið mun vera óbreyttur starfsmaður fyrirtækisins og var klæddur upp sem burrito-vefja. Wilder mun eitthvað hafa vanmetið krafta sína og kýldi hann beint í andlitið í gegnum búninginn.
Sjónvarpsþátturinn er á spænsku en er samt bandarískur. Wilder á í vændum mikla viðureign í desember gegn breska boxaranum Tyson Fury og var gestur í þættinum til þess að kynna þá viðureign.
Eins og sjá má hér að neðan var höggið sem lukkudýrið fékk afar þungt.