Beitti táragasi á mótmælendur

Mótmælendur notuðu regnhlíar til að forðast táragasið.
Mótmælendur notuðu regnhlíar til að forðast táragasið. AFP

Lögreglan í Hong Kong beitti táragasi á mótmælendur í Yuen Long hverfinu í dag þar sem óleyfileg mótmæli fóru fram. Talið er að mörg þúsund hafi komið þar saman til mótmæla. 

Mótmælendur fordæma árásir grímuklæddra manna gegn mótmælendum fyrir nokkrum dögum sem og afskiptaleysi lögreglu.

45 særðust þegar hópur manna vopnaður bareflum réðst á mótmælendur í lestarstöð í byrjun vikunnar. Atvikið vakti mikla athygli og reiði, ekki síst þar sem lögregla þótti afar lengi að koma sér á staðinn.

Lögregla bannaði fjöldafund mótmælenda í kjölfar árásarinnar á lestarstöðinni. Afar sjaldgæft er að ekki sé veitt leyfi fyrir mótmælum en lögregla sagðist óttast ofbeldi.

Mótmælendur komu því saman í óleyfi og kölluðu slagorð gegn lögreglu, sem beitti táragasi á mótmælendur.

Frá mótmælunum í dag.
Frá mótmælunum í dag. AFP

Mótmælt hefur verið í Hong Kong frá því um miðjan júní þegar stjórn­völd kynntu áætl­un sína að leggja fram framsals­frum­varp sem marg­ir inn­fædd­ir í Hong Kong töldu vera Tróju­hest Kín­verja til að fá auk­in völd í sjálf­stjórn­ar­héraðinu.

Rík­is­stjóri Hong Kong, Carrie Lam, þykir alltof höll und­ir ásælni Kín­verja um meiri yf­ir­ráð yfir sjálf­stjórn­ar­héraðinu og er henni vantreyst mjög af íbú­um Hong Kong.

Mót­mæl­end­ur hafa lofað því að viðhalda þrýst­ingi á stjórn­völd í Hong Kong þangað til kröf­um þeirra verður mætt en þær eru meðal ann­ars að Carrie Lam segi af sér og að lofað verði að framsals­frum­varpið verði aldrei lagt fyr­ir í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert