Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hótar að ganga fram með enn meiri hörku gagnvart Kúrdum fari þeir ekki með herlið sitt af svæði í norðausturhluta Sýrlands, sem Tyrkir vilja að verði skilgreint sem öryggissvæði. Þetta kom fram í upphafi fundar Erodgans með Vladimir Pútín Rússlandsforseta sem nú fer fram í borginni Sochi í Rússlandi.
Þar ræða forsetarnir málefni Sýrlands, einkum norðausturhluta landsins sem liggur að Tyrklandi. Pútín í byrjun fundarins að hann hefði trú á að þau sterku bönd, sem væru á milli landanna tveggja, myndu verða til þess að lausn fyndist á málum. „Ástandið er mjög alvarlegt,“ sagði Pútín við Erdogan.
Á fimmtudaginn tilkynnti Erdogan að Tyrkir myndu láta af árásum á svæðinu næstu 120 klukkustundirnar eða fram á kvöldið í kvöld með því skilyrði að Kúrdar myndu draga herlið sitt á brott af svæðinu.
Umrætt svæði er um 444 kílómetra langt, nær að landamærunum að Írak og er um 30 kílómetra breitt. Tilgangur Tyrkja með öryggissvæðinu er annars vegar að halda sveitum Kúrda frá landamærunum að Tyrklandi og hins vegar að þangað verði sendur hluti þeirra 3,6 milljóna flóttamanna frá Sýrlandi sem hafast nú við í Tyrklandi.