Michel Aoun, forseti Líbanons, hefur frestað þingfundi í dag þar sem velja átti nýjan forsætisráðherra. Mikil mótmæli hafa verið í landinu frá því að Saad Hariri sagði af sér sem forsætisráðherra en að sögn Al Arabiya-fréttastofunnar var fundinum freistað að hans beiðni.
Hariri sagði af sér í lok október eftir tvær vikur af fordæmalausum mótmælum í Líbanon. Mótmælendur krefjast breytinga innan stjórnmálkerfis landsins. Ekki hefur tekist að finna nýjan forsætisráðherra í stað Hariri.
Þingfundi hefur verið frestað fram á fimmtudag en útlit er fyrir að þingið kjósi Hariri til áframhaldandi setu á forsætisráðherrastóli. Því má búast við frekari mótmælum.
Fjöldi fólks mótmælti í Beirút, höfuðborg Líbanons, um helgina. „Hariri mun ekki snúa aftur,“ stóð meðal annars á skiltum mótmælenda, en átök brutust út átök milli hluta þeirra og öryggissveita þar sem yfir 100 manns særðust.