Þýsk yfirvöld hafa gefið út ferðaviðvörun til hluta Spánar, þar á meðal Katalóníu, vegna fjölgunar kórónuveirusmita í landinu. Spænsk yfirvöld eru afar ósátt við bresk yfirvöld að hafa krafist þess að þeir Bretar sem ferðist til Spánar þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna heim.
Í tilkynningu frá þýska utanríkisráðuneytinu er varað við ferðalögum til Katalóníu, Aragón og Navarra að nauðsynjalausu vegna fjölgunar COVID-19-smita og útgöngubanns.
Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, er ekki sáttur við ákvörðun breskra yfirvalda um að senda alla ferðamenn sem koma frá Spáni í sóttkví. Hann segir að hluti Spánar sé mun öruggari staður til að vera á en Bretland. Talar hann þar sértaklega um Baleareyjar, Kanaríeyjar, Andalúsíu og Valencia-hérað.
„Það má segja út frá farsóttarfræðilegu sjónarmiði að þetta séu öruggari áfangastaðir en Bretland,“ sagði Sanchez í viðtali við Telecinco seint í gærkvöldi. Hann segir að tvö af hverjum nýjum smitum séu í tveimur héruðum, Katalóníu og Aragón. Viðræður séu í gangi við bresk yfirvöld um að endurskoða ákvörðun sína varðandi Spán.
Ákvörðun breskra yfirvalda hefur valdið vonbrigðum og ringulreið meðal breskra ferðamanna á Spáni sem og Breta sem starfa við ferðaþjónustu á Spáni.
Michelle Braddock, sem er frá Newquay, rekur hótel á Lanzarote og í viðtali við BBC segir hún ákvörðunina afar furðulega þar sem smit séu afar fá á Kanaríeyjum og að fólk sé í raun að koma á öruggari stað en heima fyrir.
Breskir ferðamenn kvarta einnig yfir því hversu skammur fyrirvari var gefinn því reglunum var breytt skyndilega á sunnudag og tóku þær gildi á miðnætti þann dag.
Sóttvarnamiðstöð Þýskalands hefur áhyggjur af fjölgun smita í Þýskalandi og er fólk hvatt til þess að ganga með andlitsgrímur og virða fjarlægðarmörk.
„Við verðum að koma í veg fyrir að veiran breiðist enn og aftur stjórnlaust út," segir yfirmaður Robert Koch-stofnunarinnar, Lothar Wieler, við fréttamenn í morgun. Hann segist hafa miklar áhyggjur af fjölgun smita og það sama gildi um aðra hjá sóttvarnamiðstöðinni.