Öll aðildarríki gefa Brexit-samningi grænt ljós

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Ursula von der Leyen, forseti …
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel. AFP

Öll 27 ríki Evrópusambandsins hafa lagt blessun sína yfir samning milli Breta og ESB um útgöngu Breta úr sambandinu. Það gerðu þau á fundi sínum í Brussel í dag.

Samningar náðust á aðdangadag og síðan þá hefur samþykkis sendiherra allra aðildarríkja ESB verið beðið, sem og samþykkis breska þingsins en það kemur saman 30. desember.

Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, fer fyrir stjórnarandstöðunni í Bretlandi og hann hefur sagt að hann og hans flokksmenn muni ekki reyna að koma í veg fyrir að samningurinn hljóti samþykki þingsins. Starmer hefur alla tíð talað gegn útgöngu úr ESB.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka