Bóluefni Sinovac veitir 50,4% vernd

Bóluefni við kórónuveirunni sem kínverska lyfjafyrirtækið Sinovac framleiðir hefur reynst veita 50,4% vernd fyrir smiti. Þetta leiða nýjustu rannsóknir á bóluefninu í ljós en þær voru framkvæmdar í Brasilíu. 

50% virkni er forsenda þess að bóluefni geti fengið markaðsleyfi, að því er fram kemur í frétt BBC

Kínverska bóluefnið er annað af tveimur sem brasilísk stjórnvöld hafa samið um en Brasilía er það ríki sem hefur farið hvað verst út úr faraldrinum. 

Indónesía, Tyrkland og Singapúr eru á meðal þeirra landa sem hafa pantað bóluefnið sem ber heitið CoronaVac.

Heilbrigðisstarfsmaður heldur á sprautu með bóluefni Sinovac.
Heilbrigðisstarfsmaður heldur á sprautu með bóluefni Sinovac. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert