13 úkraínskir varðmenn á Snákaeyju, lítilli úkraínskri eyju í Svartahafi, neituðu að gefast upp fyrir rússneskum hermönnum sem þangað komu á skipi. Úkraínsku varðmennirnir stóðu á sínu og voru drepnir af rússnesku hersveitinni í kjölfarið.
Hljóðupptaka af síðustu orðum varðanna hefur farið í dreifingu á Twitter, TikTok og öðrum samfélagsmiðlum.
Hermaður í rússneska skipinu segir við úkraínsku hermennina: „Ég legg til að þið gefist upp, annars mun ég skjóta, skiljið þið það?“
Úkraínsku varðmennirnir segja þá: „svona endar þetta“, áður en þeir svara rússneska hermanninum með setningunni: „Rússneska herskip, farðu til fjandans.“
“Russian warship, go fuck yourself.”
— Nicholas A. Christakis (@NAChristakis) February 25, 2022
And then they were all killed. https://t.co/PxSuYczoit
Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu, lofaði hugrekki varðmannanna og sagði að þeir verði allir heiðraðir sem stríðshetjur.
„Þeir dóu hetjudauða en gáfust ekki upp,“ sagði Zelenskí um varðmennina.
„Þeir verða allir heiðraðir. Við munum minnast þeirra að eilífu sem gáfu Úkraínu líf sitt.“
Reportedly audio from Snake Island in Black Sea:
— Shaun Walker (@shaunwalker7) February 24, 2022
-This is a Russian military ship. I suggest you lay down your weapons and surrender to avoid bloodshed and unnecessary victims. Otherwise we will open fire on you.
-Russian military ship, go fuck yourself.
They were all killed https://t.co/QmD9RkYamE