Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa prófað nýtt vopn með góðum árangri. Um er að ræða skammdrægar eldflaugar sem munu auka hernaðargetu þeirra og notkun á kjarnorkuvopnum að stóru leyti.
Á vef BBC er greint frá því að sérfræðingar telja að Norður-Kóreumenn séu að undirbúa prófanir á kjarnorkuvopni.
Árið 2017 hætti ríkið prófunum á kjarnorkuvopnum. Ári síðar sprengdu þeir upp Punggye-ri, sem var kjarnorkutilraunsvæði landsins, til þess að ná sáttum við Bandaríkin og Suður-Kóreu.
Gervihnattarmyndir sýna hins vegar að verið sé að endurbyggja svæðið.
Ríkisrekna fréttastofa Norður-Kóreu, KCNA, sagði að um væri að ræða þýðingarmikið vopn til þess að stórbæta skotgetu langdrægra eldflauga og auka skilvirkni í kjarnorkuvopnum.
Þá sagði að Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, leggi nú áherslu á að byggja upp varnarkerfi ríkisins og kjarnorkuvopn.
Her Suður-Kóreu hefur staðfest að tveimur eldflaugum var skotið frá Norður-Kóreu í sjóinn í nótt.
Yfirvöld í Bandaríkjunum segjast fylgjast náið með stöðunni.