Yfir fimm milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimaland sitt eftir að Rússar réðust inn í landið. Þetta kemur fram í nýjustu tölum Sameinuðu þjóðanna.
Flóttamannavandinn er sá sem vaxið hefur hraðast frá síðari heimsstyrjöldinni.
Að sögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna höfðu 5.034.439 Úkraínumenn flúið landið síðan innrás Rússa hófst 24. febrúar.