19 fórust í rútuslysi

Bílslys í landinu eru ekki óalgeng.
Bílslys í landinu eru ekki óalgeng. AFP

Að minnsta kosti 19 eru látnir og 14 slasaðir eftir að rúta steyptist niður gljúfur í Pakistan í dag.

Akstursskilyrði voru slæm og mikil bleyta á veginum, vegna þessa missti bílstjórinn stjórn á ökutækinu.

Viðhald á vegum í Pakistan er lítið og bílarnir oft gamlir og lélegir. Að minnsta kosti 22 létu lífið í samskonar slysi í síðasta mánuði í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert