Snjó hefur kyngt niður í Svíþjóð og Danmörku undanfarinn sólarhring.
Svo mjög að samgöngur hafa lamast og fólk víða ekki komist leiðar sinnar.
Hér fylgja nokkrar myndir frá löndunum tveimur.
Hjólað í gegnum fönnina í Stokkhólmi.
AFP
Bíll sem lent hefur í árekstri situr fastur í snjónum utan vegar á austanverðu Jótlandi.
AFP
Þessi brá á það ráð að reiða hjól sitt á ferð um sænsku höfuðborgina.
AFP
Snjór hylur bíl og landslagið í kringum hann á Jótlandi.
AFP
Snjó kyngdi niður á lóð Stokkhólmsháskóla. Vegna samgönguvandræða voru kennslutímar færðir úr skólastofu á Zoom.
mbl.is/Tinna Birna