Forseti Kína Xi Jinping, sem er nú staddur í Rússlandi, sagði í dag að Kínverjar myndu setja tengsl sín við Rússa í forgang og sagði ríkin tvö vera „stórkostleg nágrannaríki“.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Xi ræddu saman í tæplega fimm klukkustundir í gær á óformlegum fundi. Kölluðu þeir hvorn annan „kæran vin“ og þá fylgdi Pútín Xi að bíl hans sem Rússlandsforseti gerir sjaldan.
Á fundi forsetanna í dag er búist við að málefni Úkraínu verði aðalumræðuefnið.
Þá bauð Xi Pútín til Kína síðar á þessu ári. Kínverjar hafa haldið fram hlutleysi sínu í Úkraínustríðinu en yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sakað yfirvöld í Peking um að vera að hugleiða að senda vopn til Rússlands, en Kínverjar hafa tekið fyrir þær ásakanir.
Xi sagði að ríkisstjórn Kína myndi „halda áfram að forgangsraða alhliða samstarfi Kína og Rússlands“.
Á sama tíma og forseti Kína fundar með Pútín þá er Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, kominn til Úkraínu í óvænta heimsókn. Líklegt þykir að hann muni funda með Volodimír Selenskí Úkraínuforseta.