King verður vísað úr landi

Stjórnvöld í Norður-Kóreu ætla að vísa Travis King úr landi. …
Stjórnvöld í Norður-Kóreu ætla að vísa Travis King úr landi. Myndin er tekin í Seoul í Suður-Kóreu í ágúst. AFP/Anthony Wallace

Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast ætla að vísa bandaríska hermanninum Travis King úr landi. King hefur verið í haldi stjórnvalda síðan hann hljóp yfir landamærin frá Suður-Kóreu til Norður-Kóreu í júlí.

Haft er eftir norðurkóreska ríkismiðlinum KNCA að stjórnvöld hafi lokið rannsókn sinni á ólöglegri komu King í landið. 

Var áður í fangelsi í Suður-Kóreu

Ekki kom fram hvernig og hvenær King verði vísað úr landi. 

Einn mánuður er síðan stjórnvöld í Norður-Kóreu staðfestu að hinn 23 ára hermaður væri í haldi þeirra. 

Samkvæmt fréttaflutningi KNCA gekkst hann við því að hafa komið til Norður-Kóreu ólöglega. Gerði hann það, að því er fram kemur á KCNA, vegna slæmrar framkomu bandaríska hersins, kynþáttafordóma og stéttaskiptingar í bandarísku samfélagi. 

King var í hópi ferðamanna með leiðsögumanni í Suður-Kóreu þegar hann ákvað einn síns liðs að hlaupa yfir landamæri Kóreuríkjanna.

Áður hafði King verið í fangelsi í Suður-Kóreu ákærður fyrir líkamsárás. Hann losnaði úr haldi 10. júlí.

Travis King hljóp yfir landamæri Norður-Kóreu og Suður-Kóreu í júlí.
Travis King hljóp yfir landamæri Norður-Kóreu og Suður-Kóreu í júlí. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert