Jólageitin óveðrinu að bráð

Jólageit Ikea fauk í vonda veðrinu.
Jólageit Ikea fauk í vonda veðrinu. mbl.is/Kristinn

Erfiðlega virðist ganga fyrir forsvarsmenn húsgagnaverslunarinnar Ikea að halda jólageit sinni á sínum stað. Í fyrra varð hún brennuvörgum að bráð og í ár er það móðir náttúra sem herjar á hana. Rafmagnsgirðingin sem sett var upp í ár mátti sín lítils þegar Kári feykti geitinni af stalli sínum.

Geitin, sem var sex metra há, á ættir að rekja til Svíþjóðar og skipar þar veigamikinn sess í jólahaldinu. Geitin var hér í sinni fjórðu heimsókn en sú fyrsta fékk skjótan endi þegar brennuvargar kveiktu í henni. Árið 2011 þurfi geitin einnig að berjast við íslenskan vetur í Kauptúni og fauk um koll einn daginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert