Þrjú mjög stór snjóflóð

Björgunarsveitarmenn á leið til Flateyrar með varðskipinu Þór í nótt.
Björgunarsveitarmenn á leið til Flateyrar með varðskipinu Þór í nótt. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Veðurstofa Íslands segir að snjóflóðin sem féllu á Vestfjörðum á tólfta tímanum hafi verið þrjú og mjög stór. Tvö féllu við Flateyri (úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili) og eitt gegnt Suðureyri (Norðureyrarhlíð) sem skapaði flóðbylgju sem fór yfir bæinn. 

Tjón hefur orðið á eignum en engin alvarleg slys á fólki svo vitað sé.

Samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð, sem var virkjuð í kjölfar flóðanna, hafa íbúar á Suðureyri fengið send SMS þar sem þeir eru beðnir um að halda sig frá hafnarsvæðinu, því það geti skapast hætta falli annað snjóflóð, þ.e. að flóðbylgja geti komið inn á svæðið. Á Flateyri var unglingsstúlku komið til bjargar sem hafði orðið undir flóðinu.

Frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Myndin er úr safni.
Frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert

Óvissustig hefur verið í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og hættustig vegna snjóflóða á Ísafirði, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Björgunarsveitarmenn eru á vettvangi og þá er von á varðskipinu Þór frá Ísafirði til Flateyrar með 35 björgunarsveitarmenn til viðbótar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert