Lægð sem gæti skóflað yfir okkur snjó

Búist er við að kuldakastið nái hámarki á föstudag.
Búist er við að kuldakastið nái hámarki á föstudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Líkur eru á að lægð muni myndast, nánast yfir Íslandi, í kjölfar þess að ríkjandi kuldakast nær hámarki á föstudag.

Greint er frá þessu á veðurvefnum Bliku, sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur heldur úti.

Lægð þessi „hefur alla burði til að dýpka og skófla yfir okkur snjó“, fullyrðir hann.

Átök í háloftunum

Tekið er þó fram að átökin svokölluðu í háloftunum verði svo að segja ofan í landsteinunum, og óvissan því mikil um hverju skuli spá.

„Í raun eru flestar spár enn einhvers konar tilgátur um framhaldið,“ segir Einar og bendir á að vel sé þekkt, að með miklum háþrýstisvæðum við landið geti veður breyst mjög snögglega, frá því að vera stöðugt yfir í að verða óstöðugt.

„Gerist nánast eins og hendi sé veifað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert