Breytingar á viðmiðum fyrir hlutdeildarlán

Uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekjumarka vegna hlutdeildarlána fyrir árið 2024 hafa verið …
Uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekjumarka vegna hlutdeildarlána fyrir árið 2024 hafa verið gefnar út. mbl.is/Ásdís

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekjumarka vegna hlutdeildarlána fyrir árið 2024.

Tekjumörkin eru vegna hlutdeildarlána sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum, að því er segir í tilkynningu.

Frá og með 1. janúar 2024 eru uppreiknuð tekjumörk þeirra sem sótt geta um hlutdeildarlán eftirfarandi:

Fyrir allt að 20% hlutdeildarlán:

  • Hámarkstekjur einstaklings eru kr. 9.465.000,- fyrir sl. 12 mánuði.
  • Hámarkstekjur hjóna/sambýlisfólks eru kr. 13.221.000,- fyrir sl. 12 mánuði.
  • Viðbót vegna hvers barns/ungmennis sem er undir 20 ára aldri er kr. 1.953.000,-.

Fyrir allt að 30% hlutdeildarlán:

  • Hámarkstekjur einstaklings eru kr. 6.283.000,- fyrir sl. 12 mánuði.
  • Hámarkstekjur hjóna/sambýlisfólks eru kr. 8.789.000,- fyrir sl. 12 mánuði.
  • Viðbót vegna hvers barns/ungmennis sem er undir 20 ára aldri er kr. 1.953.000
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert