Í nánu samstarfi við norræn sendiráð og stjórnvöld

Frá borginni Rafah á Gasasvæðinu í dag.
Frá borginni Rafah á Gasasvæðinu í dag. AFP/Mohammed Abed

Þrír fulltrúar utanríkisráðuneytisins sem héldu til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands um síðustu helgi, eiga í nánu samstarfi við norræn sendiráð og stjórnvöld á staðnum.

Ferðin er liður í undirbúningi aðgerða ráðuneytisins til aðstoðar við fólk á Gasasvæðinu með dvalarleyfi á Íslandi, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Vonast er til að með aðgerðunum takist að greiða fyrir för dvalarleyfishafa, sem eru á lista sem íslensk stjórnvöld hafa sent til egypskra og ísraelskra stjórnvalda, yfir landamærin. Árangurinn er háður samþykki erlendra stjórnvalda og ástandinu við landamærin. Sú staðreynd að íslensk stjórnvöld halda ekki úti sendiskrifstofu á svæðinu gerir verkefnið einnig umfangsmeira en ella,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert