Rétturinn sem rífur í bragðlaukana

Sjúklega góður vegan réttur sem rífur í! Það er Hildur …
Sjúklega góður vegan réttur sem rífur í! Það er Hildur Rut sem býður okkur upp á þennan rétt. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er réttur sem bragð er af! Þessi girnilegi vegan réttur inniheldur bygg, grænmeti, avókadó og sriracha sósu sem rífur í bragðlaukana. Það er Hildur Rut sem býður okkur upp á þennan ljúffenga rétt.

„Ég er alltaf að prófa mig áfram að elda grænmetis-og veganrétti vegna þess að ég vil borða meira af slíkum mat. Ég mæli með að sleppa jalapeno ef þið viljið ekki hafa þetta of sterkt. Sriracha sósan er alveg nóg. Annars er rétturinn líka góður án sósunnar.“

Vegan réttur sem rífur í bragðlaukana (fyrir 1)

  • 1 dl bygg
  • 1-2 dl brokkólí
  • 1-2 dl zucchini
  • 1 vorlaukur
  • ⅓ ferskt jalapeno (má sleppa)
  • 2 sveppir
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 avocado
  • 1 msk. kórander
  • Alfalfa spírur
  • Sriracha sósa (má sleppa)

Aðferð:

  1. Sjóðið byggið eftir leiðbeiningum. 1 dl á móti 2,5-3 dl af vatni. Sjóðið í 30-40 mínútur.
  2. Skerið grænmetið smátt og steikið upp úr ólífuolíu.
  3. Blandið bygginu saman við grænmetið og kryddið með salti og pipar.
  4. Dreifið yfir í lokin smátt skornu avocado-i, kóríander og alfalfa spírum ásamt Sriracha sósunni.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert