Undursamlegar súkkulaðibitakökur

Ljósmynd/Berglind Hreiðarasdóttir

Hér erum við með dásamlegar súkkulaðibitakökur úr smiðju Berglindar Hreiðars þar sem leynihráefnið er Royal-búðingur. Berglind hefur áður notað búðinginn (duftið) í súkkulaðikökur og hún fullyrðir að kökurnar verði enn betri með þessum hætti.

Undursamlegar súkkulaðibitakökur

Um 26-28 kökur

  • 200 g smjör við stofuhita
  • 150 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 pk. Royal súkkulaðibúðingur (duftið)
  • 240 g hveiti
  • 30 g bökunarkakó
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 250 g súkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Þeytið smjör og báðar tegundir af sykri saman þar til létt og ljóst.
  2. Bætið eggjunum og vanilludropunum saman við, þeytið áfram og skafið niður á milli.
  3. Hrærið búðingsdufti, hveiti, bökunarkakói, matarsóda og salti saman í skál og blandið saman við í nokkrum skömmtum, skafið niður á milli.
  4. Að lokum fara súkkulaðidroparnir saman við.
  5. Gott er að miða við að setja kúpta matskeið af deigi niður á bökunarplötu fyrir hverja köku (þið þurfið 3 plötur).
  6. Kælið kúlurnar í um 2 klukkustundir áður en þið bakið kökurnar síðan við 175°C í um 15 mínútur eða þar til kantarnir fara að dökkna örlítið.
  7. Ég plastaði plöturnar og kældi úti en ef það er ekki nægilega kalt þar má skipta deiginu niður á disk/bretti og kæla það þannig, síðan endurrúlla aðeins kúlurnar eftir kælingu og raða á ofnskúffu.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert