Bogmaðurinn: Ekki treysta öllum fyrir hugsunum þínum

Elsku hjartans Bogmaðurinn minn,

þú hefur enga þolinmæði fyrir leiðindum og veist ekkert verra en að láta tímann líða og að láta þér leiðast. Þessi mánuður verður sko alls ekki rólegur, en hann gæti byrjað með blankalogni og engu sérstöku.

Það eina sem þú skynjar er að þú sért að rífast inni í þér, svipað og þegar ég segi: „Þú ert óþolandi Sigga, það er allt svo ömurlegt“, þá heyri ég eins og aðra rödd segja: „Hættu að vorkenna þér, drífðu í þessu strax“ og þá byrja báðar Siggurnar að hlægja.

Það hafa verið töluverðar breytingar hjá þér sem þú gætir að sumu leyti ekki verið ánægður með. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa þessu öllu sem er að gerast þolinmæði og þá verður þú ánægðari og ánægðari með breytingarnar, hvort sem það tengist fljótfærni eður ei.

Á eftir logninu kemur stormurinn, og það er þinn stormur. Þú getur feykt þér áfram á undan vindinum, verið sæll og ánægður með húsnæði og starf og fundið á þér að þú ert á réttri leið. Þetta tekur kannski smá tíma, en þú hefur nóg af tíma. Næstu tveir mánuðir færa nær þér svo margt og mikið og þú verður að vera tilbúinn til þess að láta ekkert á þig fá, því það er engin ástæða til.

Í fjármálum finnurðu sniðuga leið til þess að létta þér lífið, ekki treysta öllum fyrir hugsunum þínum, því það er betra að misstíga sig með fótunum en tungunni. Þú skalt líka halda þeim leyndarmálum sem þér er treyst fyrir hjá þér, því sagan segir að þá þjóð veit ef þrír vita.

Þegar nýtt tungl hefur göngu sína þann 14 desember halda þér engin bönd og þú ferð að plana ferðalög, sama hvað hver segir.  Ástin er nálægt hjarta þínu, opnaðu fyrir hana og gefðu henni tækifæri ef þú ert á lausu, en ef þú ert það heppinn að hafa ástina í líf þínu skaltu bara ríghalda í hana því þú ert heppinn. 

Jólaknús, Sigga Kling

Frægir Bogmenn:

Ingvar E. Sigurðsson, leikari, 22. nóvember

Björgvin Franz Gíslason, leikari, 9. desember 

Steindi Jr., grínisti, 9. desember

Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, 11. desember

Ragnheiður Gröndal, söngkona, 15. desember

Jóhannes Ásbjörnsson á Fabrikkunni, 28. nóvember

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, 30. nóvember

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál