Orri Sigurður á leið til Sarpsborg

Orri Sigurður Ómarsson.
Orri Sigurður Ómarsson. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Valur og norska úrvalsdeildarfélagið Sarpsborg hafa komist að samkomulagi um kaupverð á Orra Sigurði Ómarssyni, miðverði Íslandsmeistaranna.

Orri heldur til Noregs eftir helgi í læknisskoðun og verður að öllum líkindum endanlega gengið frá félagsskiptunum í leiðinni. 

Varnarmaðurinn var nálægt því að ganga í raðir Horsens í Danmörku fyrr í vetur, en að lokum gekk það ekki upp. Sarpsborg hafnaði í 3. sæti norsku deildarinnar á síðustu leiktíð, tíu stigum á eftir meisturum Rosenborgar.

Orri hefur leikið þrjá A-landsleiki fyrir Ísland, þann síðasta gegn Indónesíu fyrr í mánuðinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert