Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindvíkinga, var stoltur af sínu liði í kvöld og ánægður að sjálfsögðu með sigur sinna manna gegn Keflvíkingum, 2:0, þegar liðin mættust í Pepsideild karla í knattspyrnu á Nettóvellinum í Keflavík.
Óli sagðist ánægður að koma á erfiðan útivöll gegn sterku liði og hirða þrjú stig. Óli sagðist einnig ánægður með að tengja saman tvær góðar frammistöður síns liðs en þrátt fyrir tap gegn FH í fyrstu umferð var hann nokkuð sáttur með byrjun mótsins.
Viðtalið í heild má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.