Ragna Lóa aftur til KR

Ragna Lóa Stefánsdóttir á hliðarlínunni.
Ragna Lóa Stefánsdóttir á hliðarlínunni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ragna Lóa Stefánsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR. Bojana Kristín Besic er sem fyrr þjálfari liðsins sem leikur í Pepsí-deildinni. 

Ragna Lóa lék með KR um tíma og gerði síðar liðið að Íslandsmeisturum sem þjálfari árið 1997. Ragna þjálfaði Fylki 2013 og 2014. 

Markvörðurinn reyndi Kristján Finnbogason mun annast markmannsþjálfun hjá liðinu samkvæmt því sem fram kemur á vef KR og Brynjar Steinarsson, fyrrverandi handboltamaður hjá ÍR, verður styrktarþjálfari sem fyrr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert