Tommadagurinn á sunnudaginn

Tómas Ingi Tómasson
Tómas Ingi Tómasson mbl.is

Tómas Ingi Tómasson yfirþjálfari yngri flokka Fylkis og aðstoðarþjálfari 21 árs landsliðs Íslands hefur ekki náð bata frá því að hann fékk gervimjöðm í ársbyrjun 2015.

Í fréttatilkynningu frá Fylki segir;

„Tommi var afburða knattspyrnumaður sem spilaði með ÍBV, KR, Grindavík og Þrótti hér heima við góðan orðstír en það tók sinn toll líkamlega og aðgerðin var óumflýjanleg. Árið 2018 hefur verið einstaklega erfitt líkamlega og andlega fyrir hann og fjölskyldu hans, þar sem Tommi hefur eytt yfir 200 dögum inni á spítala frá því í apríl. Hann bíður nú þess að komast í aðgerð í Þýskalandi þar sem síðustu 4 aðgerðir hérlendis hafa ekki skilað árangri. Ofan á allt þetta hafa svo bæst fjárhagsáhyggjur og því er komið að okkur; vinum, velunnurum og ættingjum að leggjast á eitt til að styðja Tomma og fjölskyldu hans. Gangi þér vel Tommi!“

Dagskrá

kl 9:45 - 10:45 Opin æfing / knattþrautir (f stráka og stelpur 6-12 ára) í umsjón Eyjólfs Sverrissonar Rúnars Kristins, og Arnars Grétarssonar - ásamt þjálfurum yngri flokka Fylkis

1.000 á barn við innganginn 

Kl 11:00 Úrslitaleikur Tommamótsins

Pressulið Rúnars Kristins - landslið Eyjólfs Sverrissonar. Sýndur beint á Sport TV - Gummi Ben lýsir

Kristinn Jakobsson dæmir leikinn.

Frjáls framlög við innganginn

Allir leikmenn munu greiða fyrir að spila fótbolta þennan dag.

Ef þú kemst ekki á Tommadaginn en langar að styðja verkefnið þá er hægt að leggja inn á reikning 0528-14-300 kt 0706694129

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert