ÍA leikur til úrslita um Lengjubikar karla í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir sannfærandi 4:0-sigur á KA í Akraneshöllinni í kvöld. Skagamenn eru búnir að vera afar góðir í Lengjubikarnum á leiktíðinni og hafa skorað 22 mörk í sex leikjum og aðeins fengið á sig tvö.
Alberg Hafsteinsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson komu ÍA í 2:0 í fyrri hálfleik og Gonzalo Zamorano og Bjarki Steinn Bjarkason skoruðu tvö mörk með tveggja mínútna millibili snemma í seinni hálfleik og tryggðu Skagamönnum öruggan sigur.
ÍA mætir annaðhvort KR eða FH í úrslitum, en þau leika í seinni undanúrslitaleiknum laugardaginn 30. mars.