Fjórar unglingalandsliðsstelpur í Fylki

Katla María Þórðardóttir er orðin leikmaður Fylkis.
Katla María Þórðardóttir er orðin leikmaður Fylkis. Ljósmynd/Fylkir

Kvennalið Fylkis í fótbolta hefur fengið góðan liðsstyrk en félagið hefur samið við fjóra efnilega leikmenn, þær Evu Rut Ásþórsdóttur, Írisi Unu Þórðardóttur, Kötlu Maríu Þórðardóttur og Tinnu Harðardóttur. 

Eva Rut er fædd árið 2001, uppalin í Aftureldingu en kemur til félagsins frá HK/Víking, þar sem hún spilaði 15 leiki í sumar og skoraði 3 mörk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún spilað 51 leik í meistaraflokki. Eva hefur spilað 18 leiki með yngri landsliðum Íslands og var nýverið valin í U-19 hóp Íslands sem leikur tvo vináttuleiki við Svíþjóð í byrjun nóvember.

Íris Una er fædd árið 2001 og kemur frá Keflavík. Hún á að baki 74 meistaraflokksleiki með Keflavík. Þá hefur Íris spilað 22 leiki með yngri landsliðum Íslands og var nýverið valin í U-19 hóp Íslands sem leikur tvo vináttuleiki við Svíþjóð í byrjun nóvember.

Katla María er fædd árið 2001 og kemur frá Keflavík. Hún á að baki 77 meistaraflokksleiki með Keflavík. Þá hefur Katla spilað 33  leiki með yngri landsliðum Íslands. Katla, líkt og þær Eva Rut og Íris, er í U-19 hópnum sem leikur tvo vináttuleiki við Svíþjóð í byrjun nóvember.

Tinna er fædd árið 2003, uppalin í Breiðablik. Árið 2018 spilaði Tinna með Augnablik í 2. deildinni en þar spilaði hún 9 leiki og skoraði í þeim 9 mörk. Tinna missti af síðasta tímabili vegna meiðsla en endurhæfing hefur gengið vel og gerum við ráð fyrir að Tinna geti hafið æfingar með liðinu fljótlega. Tinna hefur spilað 9 leiki með yngri landsliðum Íslands.

„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur í Fylki. Við erum gríðarlega ánægð með að hafa fengið þessa efnilegu leikmenn til okkar, leikmenn sem hafa mikinn metnað, vilja til að bæta sig og vilja æfa mikið. Við ætlum okkur að gefa þeim tækifæri til þess, vaxa og dafna, og erum fullviss um að þær muni styrkja okkar góða hóp og vera framtíðarleikmenn hjá Fylki. Við erum mjög spennt fyrir komandi tímum hér í Árbænum“ segir Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert