Framherjinn Cenk Tosun verður ekki með Tyrkjum gegn Íslendingum á morgun í undankeppni Evrópumóts karla í fótbolta ytra vegna meiðsla. Tyrkneskir fjölmiðlar greina frá meiðslunum í dag.
Tosun er samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar og hefur hann skorað 16 mörk í 40 landsleikjum. Þá hefur hann skorað fimm mörk í undankeppninni.
Tyrkjum nægir eitt stig úr leiknum á morgun til að tryggja sæti sitt í lokakeppni EM á meðan Ísland þarf nauðsynlega á sigri að halda. Flautað verður til leiks klukkan 17.