Bandarískur leikmaður til Akureyrar

Arna Sif Ásgrímsdóttir, reyndasti leikmaður Þórs/KA í leik gegn Val.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, reyndasti leikmaður Þórs/KA í leik gegn Val. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Þór/KA hefur samið við Madeline Gotta frá Bandaríkjunum um að leika með liðinu í Pepsí Max-deild kvenna í knattspyrnu í sumar. 

Fram kemur á heimasíðu Þórs að félagaskiptin eigi eftir að ganga í gegn og þar séu formsatriði eftir. 

Gotta kemur frá San Diego í Kaliforníuríki og hefur leikið í háskólafótboltanum, NCAA, undanfarin ár. Ferli hennar í NCAA er lokið en þar lék hún fyrir Gonzaga-háskólann í Washingtonríki og skoraði 7 mörk í 19 leikjum á lokaári sínu. 

Tilkynningin frá Þór/KA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert