Örvar Eggertsson hefur samið við HK í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu. Samningurinn er til þriggja ára.
Örvar, sem er 21 árs gamall, kemur frá Fjölni, sem féll úr Pepsi Max-deildinni á liðnu tímabili. Stoppið var því stutt hjá Fjölni þar sem hann kom til liðsins frá Víkingi síðastliðið vor.
Örvar spilar sem kantmaður og bakvörður og á 51 leik að baki í efstu deild, þar sem hann hefur skorað tvö mörk.
Hann vakti athygli sumarið 2019 þegar hann varð bikarmeistari í hástökki í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands utanhúss.