„Við urðum að vinna, svo við þurftum að byrja á því en svo líka að treysta á önnur lið og sem betur fer gekk það eftir, “ sagði Vesturbæingurinn Pálmi Rafn Pálmason eftir 2:0 sigur KR á Stjörnunni í dag þegar liðin mættust í lokaumferð Íslandsmóts efstu deildar karla í fótbolta í Garðabænum.
„Við fórum inní þennan leik og það var vonandi mikið í húfi, við urðum að vinna til að eiga möguleika á Evrópusætinu og spennustigið var frekar hátt í fyrri hálfleik en Rúnar náði að slaka á okkur í hálfleiksræðunni sinni og við komum flottir út í síðari hálfleik og náðum að landa þessum sigri. Fyrst við áttum ekki möguleika á titli þá vildum við fá möguleikann að fá þetta Evrópusæti en það er enn ekki hendi og við verðum bara að styðja Víkingana í bikarnum. Við verðum bara að gera það,“ bætti Pálmi Rafn við.