Tveir ungir framlengja við Breiðablik

Benedikt V. Warén í leik með Vestra gegn Þór síðasta …
Benedikt V. Warén í leik með Vestra gegn Þór síðasta sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Benedikt V. Warén og Anton Logi Lúðvíksson hafa skrifað undir nýja samninga við knattspyrnudeild Breiðabliks sem leikur í Bestu deild karla.

Benedikt er fæddur árið 2001 og á að baki 31 leik fyrir Breiðablik. Anton er tveimur árum yngri og á að baki 10 leiki fyrir Breiðablik.

Báðir voru þeir lánaðir í Lengjudeildina síðari hluta síðasta sumars og þóttu standa sig vel. Benedikt spilaði með Vestra og Anton með Aftureldingu.

Anton Logi Lúðvíksson sækir að Kyle McLagan þáverandi leikmanni Fram …
Anton Logi Lúðvíksson sækir að Kyle McLagan þáverandi leikmanni Fram og núverandi leikmanni Víkings. mbl.is/Arnþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert