Gylfi Þór tók við keflinu af Kolbeini

„Það er alveg óhætt að segja það að þetta var vonbrigðamót,“ sagði Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi úr Reykjavík, í Dagmálum.

Kári, sem er fertugur, var í lykilhlutverki hjá íslenska karlalandsliðinu sem tók þátt í lokakeppni heimsmeistaramótsins árið 2018 í Rússlandi.

„Það var ýmislegt sem fór úrskeiðis og það var mikið um meiðsli hjá okkur,“ sagði Kári.

„Afrekið að vinna riðilinn í undankeppninni, án Kolbeins Sigþórssonar, var magnað og Gylfi Þór tók skref fram á við í þessari undankeppni þar sem hann var stórkostlegur,“ sagði Kári meðal annars.

Viðtalið við Kára í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson.
Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert