Kristrún Ýr Holm, fyrirliði Keflavíkur, furðar sig á þeirri ákvörðun dómara að dæma mark þegar Stjarnan komst í 1:0 í leik sem lauk með 3:0-sigri Garðbæinga í Bestu deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Anna María Baldursdóttir kom Stjörnunni í 1:0 eftir aðeins fimm mínútna leik.
Kristrún Ýr birti myndskeið af markinu á Twitteraðgangi sínum í dag og benti á að afar erfitt væri að fullyrða að boltinn hafi farið allur inn fyrir marklínuna í þessu tilfelli, líkt og reglur kveða á um að verði að vera svo um mark sé að ræða.
Ég skil ekki ákvörðun dómara að dæma þetta mark þegar reglurnar eru skýrar um að allur boltinn þarf að vera inni. Hér er hann svo langt frá því. Er þetta standardinn í efstu deild? Dæmi hver fyrir sig. @heimavollurinn @Fotboltinet pic.twitter.com/jGHydGnwOZ
— Kristrun Yr Holm (@kristrunyrholm) June 1, 2023
Í myndskeiðinu sést Mikaela Nótt Pétursdóttir, miðvörður Keflavíkur, hreinsa frá á marklínu og ekki er að sjá, að minnsta kosti á myndskeiðinu, að boltinn hafi óyggjandi farið allur inn fyrir hana.