Norðmenn eru komnir á blað á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Króatíu. Noregur hafði betur gegn Hvíta-Rússlandi, 33:28. Noregur tapaði gegn Frakklandi í fyrsta leik og er sigurinn í dag því mikilvægur.
Sander Sagosen, Magnus Gellerud og Kristian Bjornsen voru markahæstir hjá Norðmönnum með sex mörk hver og Artsem Karalek gerði fimm fyrir Hvít-Rússa.
Noregur mætir stigalausum lærisveinum Patreks Jóhannessonar í Austurríki í síðasta leik sínum í B-riðli á þriðjudaginn.