Hodgson ráðinn til fjögurra ára

Roy Hodgson í símanum fyrir utan Wembley-leikvanginn í dag.
Roy Hodgson í símanum fyrir utan Wembley-leikvanginn í dag. Reuters

Roy Hodgson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu til næstu fjögurra ára en frá því var skýrt á fréttamannafundi sem nú stendur yfir á Wembley.

Hodgson mun ljúka tímabilinu sem knattsprnustjóri WBA og stjórna liðinu í tveimur síðustu leikjunum þar en síðan hefst undirbúningurinn fyrir úrslitakeppni Evrópumóts landsliða. Hodgson stýrir Englendingum í landsleik gegn Belgum á Wembley 2. júní en síðan hefst Evrópukeppnin í Póllandi og Úkraínu 9. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert