Hodgson að taka við enska landsliðinu

Roy Hodgson.
Roy Hodgson. Reuters

Enska knattspyrnusambandið hefur fengið leyfi hjá WBA til að ræða við knattspyrnustjórann Roy Hodgson með það fyrir augum að fá hann til að taka við þjálfun enska landsliðsins.

Hodgson er samningsbundinn WBA út þetta tímabil en hann hefur gert góða hluti með liðið frá því hann tók við því í fyrra, stuttu eftir að hann var látinn taka poka sinn hjá Liverpool.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert