Pogba veikur – ekki með í dag

Paul Pogba er lasinn til heilsu og verður ekki með …
Paul Pogba er lasinn til heilsu og verður ekki með United í enska bikarnum á morgun. AFP

Paul Pogba verður fjarri góðu gamni í dag er Manchester United heimsækir Huddersfield í bikarkeppninni ensku.

Franski miðjumaðurinn er lasinn til heilsu en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. José Mourinho, knattspyrnustjóri United, greindi frá því í gær að sögusagnir um samband hans og Pogba færi hrakandi væru fátt annað en uppspuni og lygar.

Hinn 19 ára Ethan Hamilton, frá Skotlandi, tekur sæti Pogba í leikmannahópnum og getur nú látið sig dreyma um sinn fyrsta leik með aðalliðinu, en hann hefur komið reglulega við sögu hjá unglingaliðinu í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert