Sjáðu glæsimark Jóhanns Bergs (myndskeið)

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði laglegt mark í 3:0 sigri Burnley gegn Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Jóhann Berg hirti boltann af mótherja, rak knöttinn inn í teig gestanna og sneri boltann glæsilega í fjærhornið við mikinn fögnuð á Turf Moor.

Markið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Jóhann Berg Guðmundsson fagnar marki sínu á Turf Moor í …
Jóhann Berg Guðmundsson fagnar marki sínu á Turf Moor í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert