Átti mark Everton að standa? (myndskeið)

Evert­on sótti stig gegn Manchester United á Old Trafford í ensku úr­vals­deild­inni í knatt­spyrnu eft­ir að liðin skildu jöfn, 1:1, í 17. um­ferðinni í dag. 

Mark Everton var sjálfsmark sem Victor Lindelöf skoraði og voru leikmenn Manchester United allt annað en sáttir og vildu meina að brotið hefði verið á David de Gea, markmanni liðsins, í aðdragandanum. 

Markið og aðrar svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert