Arsenal og West Ham sýndur beint á mbl.is

Arsenal getur enn haldið vonum sínum um Evrópusæti á lífi …
Arsenal getur enn haldið vonum sínum um Evrópusæti á lífi með sigri í leiknum í dag. AFP

Arsenal tekur á móti West Ham í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu klukkan 15.00 á Emirates-leikvanginum og leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á mbl.is, í samvinnu við Sjónvarp Símans.

Arsenal mætir til leiks í 10. sæti deildarinnar með 37 stig en er aðeins fimm stigum frá fimmta sætinu. West Ham er í 16. sæti með 27 stig, jafnmörg og Watford og Bournemouth sem eru í tveimur næstu sætum á eftir.

Til að sjá útsendinguna, farðu á enska vefinn á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert