Markið: Tottenham eitt með fullt hús stiga

Tottenham er eina liðið sem hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en í dag vannst 1:0-heimsigur á nýliðum Watford.

Heung-Min Son skoraði sigurmarkið seint í fyrri hálfleik en fyrirliðinn Harry Kane spilaði sinn fyrsta leik með Tottenham á tímabilinu.

Svip­mynd­ir úr leikn­um má sjá í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert