Tilþrifin: Sigurmark og glórulaus tækling

Leikur Fulham og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu bauð upp á allt og var frábær skemmtun frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu en honum lauk með sigri Fulham, 2:1.

Carlos Vinícius skoraði sigurmark leiksins á 74. mínútu eftir að Willian hafði komið Fulham yfir í fyrri hálfleik en Kalidou Koulibaly jafnaði metin fyrir Chelsea í upphafi síðari hálfleiks. 

Þá fékk Joao Félix, nýjasti liðsmaður Chelsea, að líta beint rautt spjald á 58. mínútu fyrir glórulausa tæklingu.

Leikur Fulham og Chelsea var sýndur beint á Síminn Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert