Sergio Perez hjá Force India hefur verið refsað fyrir að valda árekstri þeirra Felipe Massa þegar hringur var eftir af kappakstrinum í Montreal.
Perez færist aftur um fimm sæti á rásmarkinu í næsta móti, í Spielberg í Austurríki, að lokinni tímatökunni þar.
Massa var að freista framúraksturs þegar bílar Williams og Force India nudduðu saman hjólum með þeim afleiðingum að ökumennirnr misstu stjórn á bílunum, sem skullu á öryggisveggjum við fyrstu beygju. Munaði nær engu að bílarnir skyllu á Red Bull-bíl Sebastians Vettel.
Eftir að hafa skoðað myndbönd af atvikinu var það niðurstaða dómara kappakstursins að Perez hefði borið ábyrgðina á óhappinu með því að breyta um aksturslínu, þ.e. að aka í veg fyrir Massa.